Mín vegferð
Fyrri áföll leiddu mig að nærandi lífsspeki, um að dvelja í núinu og skilja að ég er ekki hugsanir mínar. Rit Eckharts Tolle, Mátturinn í núinu, hafði mikil áhrif og síðar núspeki manna á borð við Deepak Chopra og ekki síst Guðna Gunnarsson.
Ég bjó því yfir reynslu og þekkingu sem hjálpaði mér að feta slóðina að sátt og núvitund. Sú vegferð sýnist mörgum torsótt og tímafrek en er í raun afar stutt, því áfangastaðurinn er ekki langt undan. Þvert á móti býr hann innra með þér. En varast þarf villuljós og fylgja meðvitað vörðum sem leiða þig úr skuggum kvíða og efasemda hugans inn í vitund og ljós hjartans.
Ég lauk ársnámi í lífsráðgjöf hjá GlóMotion Akademíunni og öðlaðist heimild til að titla mig GlóMotion heilsu- og lífsráðgjafa. Námið stundaði ég bæði fyrir mig sjálfan en ekki síður til að geta aðstoðað aðra.
Í Núleikni vil ég hjálpa fólki að finna sínar eigin vörður að sátt, tilgangi og þakklæti.

