Til að kynnast ráðgjöfinni
Kynningartími
Viltu kanna hvort ráðgjöf Núleikni henti þér? Við tökum gott spjall um Núleikni í 30 mínútna kynningartíma.
7.000 kr. / 30 mín.
Bóka kynningartíma Valið samtalGlóMotion heilsu- og lífsráðgjöf
Ekkert breytist nema þú breytir einhverju
Það er ekki eftir neinu að bíða. Veittu þér rými til að staldra við, skoða þitt val og hvert það er að leiða þig. Finndu þína eigin leið með því að beina athyglinni í virkri vitund að vali sem snýst um þig og meiri sátt í daglega lífinu.

Núleikni hjálpar þér að…
Ráðgjöfin
Er kominn tími á breytingar í þínu lífi? Viltu veita þér heimild til að njóta tilverunnar á þínum eigin forsendum? Hversu mikla hamingju viltu leyfa þér? Meðvitað val er þinn máttur.
Ráðgjöf NÚLEIKNI snýst um að marka vörður fyrir þig til að finna og halda þér á slóðanum að sátt og hamingju í þínu stutta lífi. Að finna tilganginn í þessari tilveru og vera þakklátur fyrir það sem þú átt í dag. Sem er hornsteinn allrar hamingju. Þá verða þér allir vegir færir.
Á hverjum degi tökum við ákvarðanir sem móta tilveru okkar, oftar en ekki án þess að taka eftir því eða veita þeim nærandi athygli. Núleikni veitir þér rými til að skoða þessar ákvarðanir, sjá þær í meðvituðu ljósi og meta hvort þú ert að taka réttar ákvarðanir. Í framhaldinu getur þú séð hvernig þú getur valið meðvitað í þína þágu.
Athyglin er eins og sólarljósið sem skín jafnt á rósir og illgresi. Í ráðgjöfinni skoðum við hvert þú beinir henni, hvað skiptir þig máli og hvernig þú vilt njóta lífsins — núna.
Skoða samtölin sem eru í boðiGefðu þér tíma og rými til að sjá hvar þú stendur í dag og hvert þú vilt halda
Það er brýnt að þú veitir venjum þínum og viðbrögðum við heiminum athygli og hvað þú velur að gera á hverjum degi
Athygli er auðlind og upphaf hamingjunnar. Þú þarft að læra að beina athyglinni að því sem skiptir þig máli og átta þig á því að þitt er að velja - þú ert valfær og þannig máttugur
Grunnur að þinni velferð
GlóMotion er sjö skrefa umgjörð sem Guðni Gunnarsson mótaði fyrir sjálfskönnun og velsæld. Í Núleikni er hún grunnur að samtali um athygli, valfærni og hvernig þú vilt lifa.
Opnaðu hvert skref eða lestu þau öll í einu.
Athygli er ljós, ást, orka. Ljósið fer ekki í manngreinarálit. Þegar þú vaknar til vitundar geturðu ráðið því hvert þú beinir ljósinu. Þú berð ábyrgð á því hvort geislinn skín af ástríðu eða dauflega. Ljósið þitt er athygli. Allt sem þú veitir athygli vex og dafnar.
Verði þinn vilji! Vilji er orka og orka er allt sem er. Orka fæst með því að axla ábyrgð, verða ábyrgur, verða valfær. Ábyrgð er val. Allt val er með þínum vilja. Ekkert er háð viljaleysi eða tilviljunum. Orðið tilviljun þýðir einfaldlega "að vilja til sín". Fyrst vilji er val - velur þú að vera í vitund valfær? Eða velur þú að vera óvalfær?
Tilgangurinn er forsenda innblásturs og ástríðu - hann er "af hverju?" Tilgangurinn er umgjörð markmiðanna. Af hverju gerirðu það sem þú gerir? Hver er tilgangurinn, hvert stefnirðu? Hvaða hlutverki viltu gegna? Hvernig þjónar þú ljósinu?
Með því að heitbinda okkur lofum við okkur til fulls og flytjum inn í innsæið sem býr í hjartanu. Innsæið er röddin sem þú vissir alltaf að væri þarna, sannleikurinn sem vill búa í þínu hjarta. Ekki gefa afslátt af mannorði þínu með hálfkáki. Agi er einlæg, kærleiksrík umgjörð og trúverðugleiki forsenda heimildar, rými velsældar. Þegar þú mætir í eigið hjarta sérðu í gegnum blekkinguna af því að í hjartanu býr aðeins ljós.
Framgangan opinberar heimild hjartans; hversu mikla hamingju erum við reiðubúin að leyfa okkur. Við opinberum allt sem við erum. Við erum ekki hugsanir okkar, skoðanir eða viðhorf. En það sem úr þér verður byggist á því sem þú trúir - þinni framgöngu; þínum staðhæfingum, gjörðum og athygli, viljandi eða ó-viljandi.
Innsæi er óháð skynsemi eða raunhyggju. Það er samhljómur, ekki afstaða. Það er nánd, snerting við eigin anda. Innsæi er alltaf á forsendum hjartans, það er opið flæði, eiginleiki að sjá allt eins og það er án þess að dæma. Innsæi er tær vitund, samtal sálarinnar við umheiminn og við veruna í þér.
Þakklæti er forsenda örlætis - ljósinu sem af þér skín. Í þakklæti erum við samhljóma þessu eina versi sem er alheimurinn; uni-versinu. Við skiljum allt okkar orsakasamhengi. Í sannarlegu þakklæti upplifi ég almáttuga tilfinningu velsældar og allsnægta. Ég finn fyrir okkur öllum í sál minni, finn fyrir öllu sem er, uppljómun. Ég finn fyrir Guði í mér og í þér.
Vitund · val · velsæld
Þú þarft ekki að leita langt yfir skammt
Hamingjan býr innra með þér og bíður þín.

Ráðgjafinn
Óvæntur blóðtappi stíflar kransæð. Hjartað hættir að slá. En bilið á milli lífs og dauða er brúað af færu og yndislegu starfsfólki hjartadeildar Landspítalans.
Líf mitt var ekki komið á endastöð. Vegferðin hélt áfram, en kannski með breyttu sniði, og áleitnar spurningar vöknuðu.
Mun þessi reynsla styrkja mig eða veikja? Hefði verið betra að fara og láta gott heita? Hafði ég eitthvað að lifa fyrir?
Fyrri áföll leiddu mig að nærandi lífsspeki, um að dvelja í núinu og skilja að ég er ekki hugsanir mínar. Rit Eckharts Tolle, Mátturinn í núinu, hafði mikil áhrif og síðar núspeki manna á borð við Deepak Chopra og ekki síst Guðna Gunnarsson.
Ég bjó því yfir reynslu og þekkingu sem hjálpaði mér að feta slóðina að sátt og núvitund. Sú vegferð sýnist mörgum torsótt og tímafrek en er í raun afar stutt, því áfangastaðurinn er ekki langt undan. Þvert á móti býr hann innra með þér. En varast þarf villuljós og fylgja meðvitað vörðum sem leiða þig úr skuggum kvíða og efasemda hugans inn í vitund og ljós hjartans.
Ég lauk ársnámi í lífsráðgjöf hjá GlóMotion Akademíunni og öðlaðist heimild til að titla mig GlóMotion heilsu- og lífsráðgjafa. Námið stundaði ég bæði fyrir mig sjálfan en ekki síður til að geta aðstoðað aðra.
Í Núleikni vil ég hjálpa fólki að finna sínar eigin vörður að sátt, tilgangi og þakklæti.
Minn tilgangur er að njóta dagsins í einlægu þakklæti
Í undirbúningi
Fyrirlestrar um efni Núleikni eru í undirbúningi. Nánari upplýsingar verða birtar hér þegar þær liggja fyrir.
Næsta skref
Veldu það samtal sem hentar þér. Þú getur síðan undirbúið fyrirspurn og haft samband við Eirík.
Til að kynnast ráðgjöfinni
Viltu kanna hvort ráðgjöf Núleikni henti þér? Við tökum gott spjall um Núleikni í 30 mínútna kynningartíma.
7.000 kr. / 30 mín.
Bóka kynningartíma Valið samtalRými fyrir þína vegferð
Hver er þín slóð að sátt við tilveruna? Er kominn tími til að hægja aðeins á og finna sjálfan þig? Þú þarft ekki að leita langt yfir skammt.
Tími og verð samkvæmt samkomulagi.
Bóka tíma í ráðgjöf Valið samtalTímar og verð eru staðfest í samskiptum áður en bókun er ákveðin.
Fyrirspurn til Eiríks
Útbúðu drög sem þú getur yfirfarið, afritað eða opnað í tölvupósti.
Ekkert er sent eða bókað hér. Þú sendir tölvupóstinn þegar drögin eru tilbúin.
Til: eirikurpj@gmail.com
Ef tölvupóstforrit opnast ekki geturðu afritað drögin og límt í nýjan póst.
Gott að vita
Kynningartíminn er ætlaður til að kanna hvort ráðgjöf Núleikni henti þér. Þar tökum við gott spjall um ráðgjöfina. Tíminn er 30 mínútur og kostar 7.000 kr.
Þegar þú og Eiríkur hafið komið ykkur saman um tíma og verð í samskiptum. Fyrirspurnin á síðunni er upphaf samtalsins.
Já. Sendu spurninguna á eirikurpj@gmail.com.